Vika 16 – Lokaverkefni – Skipulag og hönnun
Flæðirit, tímalína, verkaskipting og tengimynd — allt sem þarf áður en forritun hefst.
📋 Hvað gerist í þessari viku?
Í síðustu viku valdir þú verkefni — nú er komið að skipuleggja verkið almennilega áður en þú byrjar að forrita. Góður undirbúningur sparar þér mikinn tíma seinna. Þeir sem hoppa beint í forritun án skipulags lenda oft í vandræðum.
Þú átt að ljúka þremur stórum hlutum í þessari viku:
Þegar þetta er tilbúið og samþykkt af kennara má hefja forritun í viku 17.
📊 Flæðirit (SFC) — hvernig virkar kerfið?
Þú þekkir SFC frá færibandaverkefninu. Nú notar þú sömu aðferð á þitt eigið verkefni. Flæðiritið er „uppskriftin" — ef það er gott, þá verður forritunin mun auðveldari.
Flæðiritið á að sýna:
Allar stöður kerfisins
T.d. „Bið", „Í gangi", „Hitar", „Tæmir", „Villa" — hvað getur kerfið verið að gera?
Skilyrði á milli (transitions)
Hvað þarf að gerast til að fara úr einni stöðu í næstu? Skynjari? Tími? Rofasmella?
Aðgerðir í hverri stöðu
Hvaða úttök eru virk? Mótor á? Ljós kveikt? Hitari virkur? Loki opinn?
Villustöður og neyðarstopp
Hvað gerist ef eitthvað fer úrskeiðis? Hvernig stöðvar kerfið á öruggan hátt?
📐 Tengimynd — teiknaðu búnaðinn þinn
Þú þekkir þetta frá færibandaverkefninu. Nú teiknar þú tengimynd af þínum eigin búnaði. Farðu í stofuna, skoðaðu búnaðinn og skráðu hvað er tengt hvar.
Tengimyndin á að sýna:
EasyE4 — inntök og úttök merkt með vistfangi
Hvaða skynjarar eru á búnaðinum? Þurfa þeir +24V/0V?
Start, stop, neyðarstopp, val-rofar
Segulrofar, ljós, lokar, dælur, VFD — allt sem PLC stýrir
Mundu merkingakerfið:
📅 Tímalína — hvenær á hvað að vera tilbúið?
Þú hefur vikur 15–20 til að ljúka lokaverkefninu. Gerðu þér tímaáætlun og skrifaðu niður hvenær þú ætlar að ljúka hverjum hluta. Ef þú vinnur með öðrum — skiptið verkinu á milli.
Ráðlögð tímalína:
👥 Verkaskipting — ef þið eruð fleiri en einn
Ef þið vinnið saman í hóp þurfa allir að vita hvað þeir eiga að gera. Skiptið verkinu skýrt og skrifið niður hver gerir hvað. Þetta kemur í veg fyrir rugling og tryggir að enginn sé í lausri veru.
🔑 Hvað á að vera tilbúið í lok vikunnar?
- Teikna flæðirit (SFC) fyrir lokaverkefnið — allar stöður, skilyrði og aðgerðir
- Teikna tengimynd af búnaðinum — PLC, skynjarar, rofar, úttök og neyðarstopp
- Búa til I/O lista sem passar við flæðirit og tengimynd
- Gera tímaáætlun: hvað gerist í hverri viku fram að skilum
- Skipta verkum ef hópverkefni — skýr ábyrgð á hverjum hluta
- Fá samþykki kennara á skipulag áður en forritun hefst
Vika 16 — til að gera
Undirbúningur lokaverkefnis
Skref vikunnar
-
Verkefni í stofu — rok5.netlify.app
I/O listar, kröfur, PDF og ráð fyrir hvert verkefni
-
Hvernig teikna ég SFC rit?
Transition vs. action, inngangar vs. útgangar
-
SFC til Ladder
Hvernig umbreytir ég SFC riti yfir í Ladder forrit
-
T – Tímaliði í EasySoft
Seinn inn, seinn út, púls og blikkari
-
C – Teljari í EasySoft
C-blokkinn, upp/niður teljari
-
D – Display í EasySoft
Texti á skjá Easy vélarinnar