⏱️ Hvað er tímaliði?

Tímaliði (Timer) gerir eitt einfalt: hann bíður í ákveðinn tíma og gerir svo eitthvað. Í EasySoft er tímaliðinn einn T-blokk (T01–T32) þar sem þú velur hvaða stillingu hann notar þegar þú setur hann upp.

Tíminn sem þú stillir getur verið frá 5 ms upp í 99 klst 59 mín. Þú velur tímasvið: sekúndur (S), mínútur:sekúndur (M:S), eða klukkustundir:mínútur (H:M).

💡 Hvenær nota ég tímaliði?

Alltaf þegar SFC ritið segir „bíða 2 sek", „seinkun 5 sek" eða „blikka á 1 sek fresti". Tímaliðir eru notaðir í næstum hverju Ladder forriti — í álagsdreifingu, biðskrefum, blikkljósum og meira.

🧱 T-blokkinn í EasySoft

Þegar þú setur tímaliði í Ladder forritið birtist þessi FBD blokk:

Txx
ENQ1
REFB
STQV
I1
I2
PinHeitiHvað gerir hann?
EN Virkja Þegar EN fer ON byrjar tímaliðinn að telja. Þegar EN fer OFF fer allt eftir stillingunni (sjá stillingar hér að neðan).
RE Reset Núllstillir tímaliðann. QV fer í 0 og Q1 slökknar.
ST Stop Frysti tímaliðann — heldur QV gildi sínu en hættir að telja. Gagnlegt ef þú vilt gera hlé.
I1 Tímagildi 1 Aðaltíminn. Hversu lengi á að bíða. T.d. 2 sek, 5 sek, 500 ms. Notað í öllum stillingum.
I2 Tímagildi 2 Annar tími — notað í blikkara (OFF tími) og í tilviljanartíma (random). Í einföldum stillingum er I2 ekki notað.
Q1 Útgangur Kveikir eða slökknar eftir stillingunni. Þetta er merkið sem þú notar — t.d. til að fara í næsta skref.
FB Feedback ON meðan tímaliðinn er virkur (EN = ON). Staðfesting á að blokkinn sé í gangi.
QV Rauntími Sýnir hversu langt er liðið. Gott er að tengja næsta lausa MW við til að sjá hvað tímaliðinn er að gera í simulation.

🔧 Fjórar stillingar

T-blokkurinn getur virkað á fjóra mismunandi vegu. Þú velur stillinguna í parametrum þegar þú setur blokkinn upp. Hún breytist ekki á keyrslutíma — þú þarft að vita fyrirfram hvaða hegðun þú vilt.

Stilling 1
⏳ Seinn inn
On-delayed
EN fer ON → tímaliðinn byrjar að telja → þegar I1 tíminn er liðinn kveikir Q1.

Dæmi: Ýttu á Start → bíddu 2 sek → mótor keyrir.
Notkun: Biðtími á milli SFC skrefa. Álagsdreifing (kveikja ljós eitt í einu).
Seinn inn (On-delayed) EN Q1 I1
Stilling 2
⏳ Seinn út
Off-delayed
EN fer ON → Q1 kveikir strax. EN fer OFF → tímaliðinn byrjar telja → eftir I1 tíma slökknar Q1.

Dæmi: Vifta keyrir meðan ýtt er á rofa — og 30 sek eftir að sleppt er.
Notkun: Eftirkeyrslutími. Ljós sem helst á eftir að rofanum er sleppt.
Seinn út (Off-delayed) EN Q1 I1
Stilling 3
⚡ Púls
Single pulse
EN fer ON → Q1 kveikir strax → eftir I1 tíma slökknar Q1 sjálfkrafa — jafnvel þótt EN sé enn ON.

Dæmi: Stutt hljóðmerki (1 sek píp) þegar eitthvað gerist.
Notkun: Eitt-skots merki. Stuttur viðvörunarpúls.
Púls (Single pulse) EN Q1 I1
Stilling 4
💡 Blikkari
Flashing
EN fer ON → Q1 blikkar: ON í I1 tíma, OFF í I2 tíma, aftur og aftur. Ef I1 = I2 er blikkið jafnt (samhverft).

Dæmi: Gult stöðuljós blikkar á 0,5 sek fresti meðan kerfið er í bið.
Notkun: Stöðuljós (bið, neyðar). Viðvörun. Allt sem þarf að blikka.
Blikkari (Flashing) EN Q1 I1 I2
💡 Hvaða stillingu á ég að nota?

Biðtími á milli skrefa? → Seinn inn.
Eitthvað heldur áfram eftir að slökkt er? → Seinn út.
Stutt merki einu sinni? → Púls.
Eitthvað blikkar? → Blikkari.

🎮 Prófaðu sjálf(ur) — T01 tímaliði

QV (rauntími)
0.0s
/
I1 (tímagildi)
2.0s
EN: OFF
Q1: OFF
Veldu stillingu og haltu EN inni (eða smelltu á kveikja/slökkva) til að sjá hvernig tímaliðinn virkar.

⚠️ Algengar villur

❌ Q1 kveikir aldrei: Er EN virkt? Ef EN er OFF byrjar tímaliðinn ekki. Er tímagildið (I1) rétt stillt — ekki 0?
❌ Röng stilling: Ef þú vilt bíða og fara í næsta skref → notaðu „seinn inn", ekki „seinn út". Þetta ruglast auðveldlega!
❌ Tímasvið vitlaust: Ef þú stillir 2 sek en velur M:S tímasvið, þá bíður hann í 2 mínútur. Athugaðu tímasviðið (S, M:S, H:M).
❌ Nota sama T-blokk tvisvar: Eins og með C-blokkinn — notaðu hvern T-blokk aðeins á einum stað í forritinu. T01 í eitt, T02 í annað.

📚 Sjáðu líka

← Til baka