V9 – Hönnun lokaverkefnis
I/O listi, tengimynd og flæðirit (eða SFC) — grunnstoðin sem öll forritunin byggir á.
Ekki byrja á forritun ennþá!
V9 snýst eingöngu um undirbúning — I/O lista, tengimynd og flæðirit. Forritun og prófanir koma í V10 (vika 17), þegar V9 er tilbúið og samþykkt af kennara.
Sá sem hoppar beint í forritun án þess að klára hönnunina endar nær alltaf með kerfi sem virkar ekki — og tekur miklu lengri tíma að laga eftir á.
🎯 Markmið
Markmið verkefnisins er að hanna lokaverkefnið þitt að fullu áður en forritun hefst. Þú átt að lista upp búnaðinn sem þú ætlar að nota, sýna á teikningu hvernig hann er tengdur við PLC-vélina, og lýsa virkninni með flæðiriti eða SFC riti.
Þegar þetta er tilbúið og samþykkt af kennara hefur þú skýra leiðarvísi til að forrita eftir — og forritunin verður margfalt auðveldari.
📋 Hvað á að gera?
Lausnin á að innihalda þrjá þætti:
Listinn á að innihalda allan búnað sem þú ætlar að nota — alla skynjara, rofa, úttök, ljós og hreyfla. Hver lína í listanum á að sýna:
DÆMI:
| Heiti | Tegund | Vistfang | Lýsing |
|---|---|---|---|
| -S1 | DI | I1 | Start takki |
| -S2 | DI | I2 | Neyðarstopp |
| -B1 | DI | I3 | Skynjari — kubbur til staðar |
| -K1 | DO | Q1 | Spólurofi fyrir mótor |
| -H1 | DO | Q2 | Grænt ljós — kerfi í gangi |
Tengimyndin sýnir hvernig allur búnaðurinn er tengdur við PLC-vélina. Hún á að vera sæmilega læsileg, með réttum táknmyndum og skýrum heitum á öllum búnaði.
Á tengimyndinni þurfa að koma fram:
MUNDU MERKINGAKERFIÐ:
Þú mátt velja á milli tveggja útfærslna — bæði eru gild. Flæðirit er klassíska kassa- og örvarit, og SFC rit er stöðluð PLC útgáfa með stöðum og umskiptum. Hvort sem þú velur, þarf ritið að sýna:
🔨 Vinnuferli
📦 Skil
Skila skal einu PDF skjali sem inniheldur:
⚖️ Matskvarði
📚 Bjargir
- Vika 16 – Skipulag og hönnunYfirlit yfir vikuna, tímalínu og verkaskiptingu
- Stofa – nánari upplýsingar um búnaðI/O listar, kröfur og PDF fyrir hvert verkefni
- Hvernig teikna ég SFC rit?Transition vs. action, inngangar vs. útgangar, skref-fyrir-skref
- Frá SFC yfir í LadderTil undirbúnings — verður notað í V10 (vika 17)
- I/O listiHvernig á I/O listi að líta út — inngangar, útgangar, merkingar