🔌 Inngangar og útgangar — Byrjum á þessu

Áður en þú teiknar SFC rit þarftu að skilja inngang og útgang. Þetta ruglar marga í byrjun — en hugmyndin er einföld þegar þú veist frá hvaða sjónarhorni þú horfir.

Allt snýst um PLC-vélina. Þú horfir alltaf frá hennar sjónarhorni:

Inngangar (I) = það sem PLC-vélin HEYRIR

Rofar, takkar, skynjarar — allt sem sendir merki inn í PLC-vélina. Þetta er eins og eyrun á vélinni. Hún hlustar á hvað er að gerast í umhverfinu.

Útgangar (Q) = það sem PLC-vélin GERIR

Ljós, mótorar, segulliðar, buzzer — allt sem PLC-vélin stjórnar. Þetta eru hendurnar á vélinni. Hún kveikir, slekkur, snýr og hreyfir hluti.

Hér er mynd sem sýnir þetta:

🔘
Start takki
I1
🔴
Stop takki
I2
📡
Skynjari
I3


PLC
EasyE4


💡
Grænt ljós
Q1
💡
Rautt ljós
Q2
⚙️
Mótor
Q3
⚠️ Algeng villa

Nemendur rugla stundum saman skynjara (inngangi) og ljósi (útgangi) vegna þess að bæði geta „lýst". En mundu: skynjari sendir merki til PLC (inngang), en ljós fær skipun frá PLC (útgang). Spyrðu þig alltaf: „Er þetta eitthvað sem PLC-vélin les, eða eitthvað sem hún stjórnar?"

Hvernig er þetta tengt í raun? Inngangarnir eru víraðir inn á I-klemmu PLC-vélarinnar. Þegar þú ýtir á takka fær PLC-vélin 24V merki á þeim inngangi. Útgangarnir eru víraðir út frá Q-klemmum — þegar PLC-vélin kveikir á útgangi fær búnaðurinn straum.

Dæmi um i/o lista:

INNGANGAR
I1 → Start takki (NO)
I2 → Stop takki (NC)
I3 → Skynjari við miðju

ÚTGANGAR
Q1 → Grænt ljós
Q2 → Gult ljós
Q3 → Rautt ljós

🧱 SFC byggingareiningar — Þrjú atriði

SFC rit er byggt úr nákvæmlega þremur hlutum. Ekkert fleira, ekkert minna:

S1: Heiti
Skref (Step)
Kassinn
Eitt ástand sem kerfið er í. Meðan skrefið er virkt getur eitthvað verið að gerast (aðgerð). Hvert skref hefur númer og heiti, t.d. „S1: Bíða" eða „S3: Keyra band".
I1 = true
Skipting (Transition)
Lárétta línan
Skilyrði til að fara í næsta skref. Þetta er alltaf spurning: „Er eitthvað orðið satt?" T.d. „Er ýtt á start?" eða „Er skynjari virkur?" eða „Eru 5 sek liðnar?"

Skipting = INNGANG eða TÍMI. Hún lýsir hvenær á að fara í næsta skref.
S2
N
Kveikja ljós
Aðgerð (Action)
Kassinn til hliðar
Hvað á PLC-vélin að GERA meðan skrefið er virkt? T.d. „Kveikja á mótori" eða „Slökkva á ljósi".

Aðgerð = ÚTGANG. Hún lýsir hvað kerfið gerir á meðan.
S1: Bíða
Upphafssskref (Initial step)
Tvöfaldur rammi
Skrefið sem kerfið byrjar í þegar kveikt er á PLC. Alltaf nákvæmlega eitt. Teiknaður með þykkan ramma til aðgreiningar.

🎯 Gullreglan — Transition vs. Action

Þetta er það sem flestir eiga erfitt með í byrjun. Hér er einfaldasta leiðin til að muna:

Transition (Skipting)
Hvenær förum við í næsta skref?"

Þetta er spurning sem svarast
JÁ eða NEI.

Inngangar, skynjarar, tímar
Action (Aðgerð)
Hvað gerir vélin á meðan?"

Þetta er skipun sem PLC-vélin
framkvæmir.

Ljós, mótorar, segulliðar
💡 Minnisregla

Transition = „Ef...?" → Ef skynjari sér? Ef ýtt á takka? Ef tími liðinn?
Action = „Gera!" → Kveikja ljós! Keyra mótor! Opna loka!

Transition spyr. Action gerir.

🚦 Dæmi: Umferðarljós teiknað skref fyrir skref

Við skulum teikna SFC rit fyrir einfalt umferðarljós sem skiptist á milli rauðu, gulu og grænu.

Fyrst — hvað höfum við?

INNGANGAR
I1 → Start takki

ÚTGANGAR
Q1 → Rautt ljós
Q2 → Gult ljós
Q3 → Grænt ljós

TÍMAR
T1 → 10 sek (rautt)
T2 → 2 sek (gult á eftir rauðu)
T3 → 10 sek (grænt)
T4 → 2 sek (gult á eftir grænu)

SFC ritið:

S1: Rautt
N
Q1 (rautt)
← kveikja á rauðu
T1 (10 sek)← hvenær? þegar 10 sek liðnar
S2: Rautt+Gult
N
Q1+Q2
← bæði rautt og gult
T2 (2 sek)
S3: Grænt
N
Q3 (grænt)
← kveikja á grænu
T3 (10 sek)
S4: Gult
N
Q2 (gult)
← aðeins gult
T4 (2 sek)
↩ Aftur í S1 (Rautt)
💡 Taktu eftir mynstrinu

Hvert skref segir hvað er kveikt (Action = útgangar).
Hvert transition segir hvenær við förum áfram (tímaliður í þessu tilfelli).
Þegar síðasta transition er uppfyllt förum við aftur í S1 — lykkjan endurtekur sig.

✏️ Teikniráð — hvernig á að gera þetta á pappír

Í V1 teiknar þú SFC ritið með hendi á pappír. Hér eru ráð:

1. Byrjaðu á i/o listanum. Skráðu alla inngang og útganga áður en þú teiknar. Þetta er grunnurinn.
2. Teiknaðu lóðrétt niður á blaðinu. Byrjaðu efst með S1 og farðu niður. Skref, transition, skref, transition...
3. Notaðu reglustiku fyrir kassana og línurnar. Það þarf ekki að vera fullkomið, en skýrt.
4. Skrifaðu i/o heiti í action. Ekki skrifa „kveikja ljós" — skrifaðu Q1 eða Q1 (rautt). Tengdu við i/o listann.
5. Teiknaðu ör neðst sem sýnir hvar lykkjan fer aftur í upphaf (eða endar).

📚 Sjáðu líka

← Til baka í viku 4