Vika 15 – Lokaverkefni – Veldu verkefni
Kynning á verkefnum í stofunni, val á lokaverkefni og skipulagning.
📋 Hvað gerist í þessari viku?
Nú byrjar stærsti hluti áfangans — lokaverkefnið sem vegur 30% af lokaeinkunn. Þú velur verkefni úr stofunni, kynnir þér búnaðinn og skipuleggur verkið.
Í þessari viku skoðum við öll verkefnin sem eru í boði, þú velur eitt og byrjar á undirbúningi. Kennari þarf að samþykkja val þitt áður en þú byrjar að forrita.
Þú vinnur að lokaverkefninu í vikum 15–20 og þú ert búin/n að læra öll tólin sem þú þarft: SFC, Ladder, tímaliði, teljara, samanburð og Display.
🏭 Verkefni í boði
Hér eru öll verkefnin sem eru í stofunni. Skoðaðu þau vel — hugsaðu um hvað þú hefur gaman af og hvað hentar þínu stigi. Þú velur eitt verkefni og vinnur að því út önnina.
🤔 Hvernig vel ég verkefni?
Hugsaðu um þrennt þegar þú velur:
📅 Tímalína lokaverkefnis
Þú hefur vikur 15–20 til að ljúka verkefninu. Hér er ráðlagður tímarammi:
🔑 Lykilatriði
- Skoða öll verkefni sem eru í boði í stofunni
- Velja lokaverkefni og fá samþykki kennara
- Byrja á undirbúningi: kynna sér búnað, skynjara og I/O
- Skipuleggja verkefnið: SFC rit, I/O listi, tengimynd
- Gera tímaáætlun fyrir vikur 15–20
Lokaverkefni – 30% af einkunn
Vikur 15–20
Hvað þarf að gera í þessari viku?
-
Verkefni í stofu — rok5.netlify.app
Nánari upplýsingar um hvert verkefni: I/O listi, kröfur, PDF og ráð
-
Hvernig teikna ég SFC rit?
Transition vs. action, inngangar vs. útgangar, og skref-fyrir-skref leiðbeiningar
-
SFC til Ladder
Hvernig umbreytir ég SFC riti yfir í Ladder forrit
-
T – Tímaliði í EasySoft
Seinn inn, seinn út, púls og blikkari
-
C – Teljari í EasySoft
C-blokkinn, upp/niður teljari
-
D – Display í EasySoft
Texti á skjá Easy vélarinnar