📄 Verkefni: V8 ⚖️ Vægi: 5% 📅 Vika: 15

🎯 Markmið

Markmið verkefnisins er að velja lokaverkefnið þitt og skrifa skýra verklýsingu sem útskýrir hvað þú ætlar að gera, hvernig þú ætlar að gera það, og afhverju þú valdir einmitt þetta verkefni.

Góð verklýsing er kort af leiðinni sem þú ætlar að fara — hún hjálpar þér að skipuleggja þig, halda utan um vikurnar 15–20, og hún sýnir kennaranum að þú hefur hugsað verkefnið út og veist hvert þú stefnir.

🏭 Verkefni í boði

Þetta eru verkefnin sem þú getur valið úr. Nánari upplýsingar er að finna í viku 15 og á rok5.netlify.app/stofa.

🛁
Heitur pottur
Hitareglun · Samanburður · Analog
🏭
Festo Flokkari
Litagreining · Sequence · Skynjarar
⚙️
Festo Lokavél
Sogbúnaður · Villumeðhöndlun · Teljari
🗃️
Festo Magazin
Tjakkur · Sequence · Skynjarar
💧
Vatnshæðarreglun
PID · VFD · Filter · Analog
🌲
Könglaþvottavél
VFD · Hitareglun · Snúningsnemi
🏎️
Bílabraut
MUX · Analog · Spennumagnari
🅿️
Bílastæðahús
Teljarar · Sequence · Hurðarstýring
📦
Færiband – skapandi
Eigin útfærsla · Þarf samþykki
Þitt eigið val
Þegar þú hefur valið verkefni fyllir þú út upplýsingar um þitt verkefni í verklýsingunni. Þetta verður þitt verkefni næstu fimm vikurnar — veldu eitthvað sem þú hefur áhuga á og hentar þínu stigi.
VerkefniHvaða verkefni valdi ég?
AfhverjuHvers vegna valdi ég þetta?
LykilbúnaðurHvaða skynjara/hreyfla vinn ég með?
ÁskoranirHvað verður erfitt — og hvernig leysi ég það?

📝 Hvað er góð verklýsing?

Góð verklýsing er stutt en hnitmiðuð — yfirleitt 1–2 blaðsíður. Hún svarar þremur spurningum: hvað ætla ég að gera, hvernig, og afhverju. Hún skiptist í þrjá hluta:

1. Val og rökstuðningur

Hvaða verkefni valdir þú og afhverju? Þetta er stutt — 1–2 málsgreinar duga. Lýstu verkefninu í örstuttu máli og útskýrðu af hverju þú valdir einmitt þetta.

Hvaða verkefni — nafn og stutt lýsing á virkni kerfisins
Afhverju — áhugi, áskorun, færni sem þú vilt læra
Hvað er spennandi við verkefnið fyrir þig persónulega
2. Vinnuferli — hvernig fer þetta fram?

Þetta er kjarni verklýsingarinnar. Lýstu vinnuferlinu skref fyrir skref — hvað ætlar þú að gera fyrst, næst, og að lokum. Notaðu vikurnar 15–20 sem ramma:

V15
🔍 Verkefnaval og undirbúningur
Velja verkefni, skoða búnað í stofunni, skrifa verklýsingu (V8).
V16
📐 Hönnun
SFC rit, I/O listi og tengimynd fyrir valið kerfi.
V17
💻 Forritun
Grunnvirkni forrituð í Ladder, fyrstu prófanir á tengingum.
V18
🔧 Prófanir og lagfæringar
Forritun lokið, prófa kerfið, laga villur og bæta við virkni.
V19
📊 Display og fínpússun
Texti á skjá Easy vélarinnar (D-blokkin), athugasemdir í forriti, frágangur.
V20
🎤 Kynning og skil
Kynna verkefnið fyrir bekknum, skila skýrslu og forriti.

Þetta er ráðlagður rammi — þú mátt aðlaga hann að þínu verkefni. Aðalatriðið er að það komi skýrt fram hvenær þú ætlar að gera hvað.

3. Framsetning — hvernig set ég verkefnið fram?

Lokaverkefnið verður kynnt og skilað í viku 20. Lýstu stuttlega hvernig þú ætlar að kynna afurðina og hvað skýrslan/skjölunin þín mun innihalda.

Hvernig kynningin verður — sýni virkni, útskýri SFC, sýni forrit
Hvað skýrslan inniheldur — SFC, I/O listi, tengimynd, athugasemdir í forriti
Hvernig þú tryggir að framsetningin sé snyrtileg og fagleg
💡 Ábending: Þú þarft ekki að vita allt fyrirfram — verklýsingin er áætlun, ekki samningur. Ef eitthvað breytist í vinnuferlinu er það eðlilegt. Aðalatriðið er að þú hafir hugsað málið og veist hvar þú byrjar.

📦 Skil

Skila skal einu PDF skjali (eða Word skjali) sem inniheldur:

1 Forsíða með nafni, áfangaheiti og völdu verkefni
2 Val og rökstuðningur — hvaða verkefni og afhverju
3 Vinnuferli — hvenær og hvernig þú ætlar að gera hvað (vikur 15–20)
4 Framsetning — hvernig þú ætlar að kynna verkefnið og skila því
⚠️ Verkefnavalið þarf samþykki kennara. Ræddu valið áður en þú skilar verklýsingunni.
📏 Lengd: 1–2 blaðsíður. Hnitmiðað og snyrtilegt — ekki skrifa langar málsgreinar bara til að fylla síðu.

⚖️ Matskvarði

25%
Val og rökstuðningur
45%
Vinnuferli
15%
Framsetning
15%
Frágangur
Matsþáttur
3 – Mjög gott
2 – Gott
1 – Ábótavant
Val og rökstuðningur
Skýrt val, vel rökstutt. Sýnir áhuga og að nemandi hefur hugsað málið vel.
Val ljóst, rökstuðningur til staðar en mætti vera ítarlegri eða skýrari.
Óljóst val eða rökstuðningur vantar að mestu.
Vinnuferli — heildarmynd
Skýr og rökrétt áætlun fyrir vikur 15–20. Auðvelt að sjá hvenær hvað gerist.
Áætlun til staðar en eitthvað vantar upp á skýrleika eða heildarmynd.
Óskýr eða ófullnægjandi — erfitt að átta sig á því hvernig verkið verður unnið.
Vinnuferli — raunhæft
Áætlunin er raunhæf, sýnir góðan skilning á því sem verkefnið krefst.
Að mestu raunhæf en sumir liðir of bjartsýnir eða óljósir.
Óraunhæf eða sýnir takmarkaðan skilning á verkefninu.
Framsetning
Lýsir vel hvernig kynning og skil verða. Hugsað út í áhorfendur og innihald.
Lýsing til staðar en mætti vera ítarlegri eða nákvæmari.
Vantar eða mjög óljós.
Frágangur og uppsetning
Mjög snyrtilegt, vel skipulagt. Læsileg uppsetning og góður stíll.
Að mestu snyrtilegt en uppsetning eða stíll mætti vera betri.
Slakur frágangur, óskipulagt eða illa læsilegt.
Athugasemd: Verklýsingin er áætlun — það er í lagi þótt eitthvað breytist í vinnuferlinu. Það er metið hversu vel þú hefur hugsað málið og hvort áætlunin sé skýr og raunhæf.

📚 Bjargir

← Til baka í viku 15