Vika 9 – Færiband – Forritun
Teljarar og display kynnt, forritun í EasySoft, og skil á SFC, tengimynd og I/O lista.
📋 Hvað gerist í þessari viku?
Kennari fer yfir teljara (C-blokk) og display (D-blokk) á töflunni. Þú lærir hvernig teljarinn telur (rising edge), hvernig hann birtist á skjánum á Easy vélinni, og hvernig þú notar þetta í færibandaverkefninu.
Markmiðið er að þú getir forritað færibandið í EasySoft og fengið það til að virka í Simulation — áður en þú tengir í næstu viku. Notaðu SFC ritið og I/O listann frá viku 8 sem grunn.
Í þessari viku þarf líka að skila SFC, tengimynd, I/O lista og greinargerð um hvernig neyðarstoppið virkar — sjá verkefnaflipa.
🔑 Lykilhugtök vikunnar
🔢 Teljarar á display
Á display vélarinnar á alltaf að sjást hversu oft hver skynjari hefur verið virkur:
Skynjari 2 : 8
Skynjari 3 : 5
🛑 Set/Reset og neyðarstopp
Í færibandaverkefninu þarftu neyðarstopp og venjulegt stop. Til að tryggja öryggi notum við Set/Reset í stað venjulegra coils:
- Skilja hvernig C-blokkinn (teljari) virkar — C_, D_, RE, SH, OF og QV
- Skilja hvernig D-blokkinn (display) sýnir tölur og texta á skjá vélarinnar
- Skilja Set/Reset og hvernig neyðarstopp virkar í Ladder
- Forrita færibandið í EasySoft og fá Simulation til að virka
- Skila SFC riti, tengimynd, I/O lista og greinargerð um neyðarstopp
V5 – Færiband: Bóklegt og forritun
Skilaðu hönnunarskjölum og byrjaðu á forritun. Tenging kemur í viku 10.
📦 Skil í þessari viku:
- SFC rit — þrepaskýring á færibandinu, allar stöður og skilyrði
- Tengimynd — PLC, skynjarar, rofar, mótor, ljós, neyðarstopp, vistföng merkt
- I/O listi — allir inngangar og útgangar, heiti, tegund (NO/NC), spennu
- Greinargerð — stutt um hvernig neyðarstoppið virkar í iðnaði og í þínu kerfi
📬 Skil
Ein PDF með öllum skjölum, skilað í skilahólf.
🏷️ Merkingar og læsileiki — skylduatriði
Forritið þarf að vera skrifað þannig að einhver annar (nemandi eða kennari) geti skilið það án þess að þú útskýrir. Þetta er 40% af einkunn — jafn mikilvægt og virkni!
⚖️ Matskvarði:
-
C – Teljari í EasySoft
C-blokkinn: C_, D_, SH, QV, OF. Gagnvirkur hermir og Ladder dæmi
-
D – Display í EasySoft
Sýna texta og tölur á skjá Easy vélarinnar — D-blokkinn
-
Tengingar í EasySoft
Set/Reset, NO/NC, sjálfhald — mikilvægt fyrir neyðarstopp
-
Frá SFC yfir í Ladder
M-bitar, sjálfhald, tímaliðir og uppbygging Ladder forrits
-
I/O Listi
Heiti búnaðar, NO/NC, spennu og markerar
-
Skýrslugerð
Forsíða, tengimynd, myndir — hvernig á skýrslan að líta út
-
Dæmaforrit – SFC og Ladder
Tilbúin forrit útskýrð — gott til viðmiðunar