📄 Af hverju skiptir uppsetning máli?

Þegar þú skilar verkefni er skýrslan sú mynd sem kennari sér af vinnunni þinni. Jafnvel þótt forritið virki fullkomlega — ef skýrslan er ruslug, óskýr eða erfið að lesa, þá endurspeglar hún ekki vinnuna sem var lögð í verkefnið.

Uppsettning á skýrslu gildir töluvert í lokaeinkunn. Þegar skilalýsing segir að skýrsla eigi að vera „læsileg og skýr" þá er verið að meta framsetningu jafnt og innihald. Þetta er ekki bara skreyting — þetta er hluti af verkefninu.

💡 Hugsum um þetta svona

Ef viðskiptavinur fær skýrslu frá þér sem rafverktaki — myndir þú senda ruglingslega skýrslu þar sem ekkert sést á teikningum? Góð skýrsla er fagleg venja.

📝 Forsíða

Öll skýrsla byrjar á forsíðu. Hún þarf ekki að vera flókin en verður að innihalda allar grunnupplýsingar svo lesandinn viti strax um hvað þetta snýst.

Á forsíðunni þarf að koma fram:

Dæmi um forsíðu:

Verkmenntaskólinn á Akureyri
Lokaverkefni
Færiband með teljara og skynjurum
Áfangi
Rökrásir 4 — RÖKV3FS03
Kennari
Friðrik Óli
Nemendur
Jón Jónsson & Guðrún Helga
Apríl 2026
💡 Forsíðan fær sína eigin síðu

Notaðu Page Break eftir forsíðuna svo efnisyfirlitið eða fyrsti kafli byrji á nýrri síðu. Þetta tryggir hreint útlit.

🗂️ Uppbygging skýrslu

Góð skýrsla hefur skýra uppbyggingu sem lesandinn getur fylgt. Hér er dæmigerð röð kafla:

1
Forsíða
Áfangi, verkefni, kennari, nemendur, dagsetning.
2
Lýsing á verkefni
Stutt lýsing á því hvað verkefnið á að gera — hvaða kerfi er verið að byggja.
3
I/O listi
Tafla yfir alla inn- og útganga. Gott er að nota töflu í Word.
4
SFC-rit
Mynd af SFC-ritinu þínu — ein teikning á síðu.
5
Tengimynd
Rafmagnsteikningin — ein teikning á síðu, nægilega stór.
6
Skjáskot úr EasySoft
Ladder forritið — hægt að skipta á fleiri síður ef forritið er langt.
7
Niðurstaða / umræður
Stutt um hvað gekk vel, hvað var erfitt, og hvað þú lærðir.
💡 Töflur þar sem við á

Word-töflur eru frábærar fyrir I/O lista, samanburð, eða skýringar á breytum. Þær gera upplýsingarnar mun skýrari en ef allt er í lausum texta.

🖼️ Myndir og teikningar

Myndir af teikningum, SFC-ritum og Ladder forritinu eru stór hluti af skýrslunni. Ef ekki sést á þeim — þá skipta þær engu máli.

Gullreglan:

Ein síða = Ein teikning

Teikningar og SFC-rit eiga að vera nægilega stórar til að maður sjái allt á þeim.
Ekki troða 2–3 teikningum á sömu síðu nema þær séu mjög litlar og einfaldar.

Rétt

Tengimynd ein á síðu, stór og skýr. Allur texti á teikningunni er læsilegur. Myndin fyllir meirihluta síðunnar.

Rangt

Þrjár teikningar troðnar á eina síðu. Texti á þeim er örlítill og ólæsilegur. Enginn sér hvað er á tengimyndinni.

⚠️ Athugaðu áður en þú skilar

Prentaðu skýrsluna sem PDF og skoðaðu hverja síðu. Sérðu hvað er á öllum teikningum? Ef ekki — stækkaðu myndina eða settu hana eina á síðu.

🔧 Ráð í Word — Wrap og Page Break

Tvö atriði í Word geta breytt öllu um hvernig skýrslan lítur út:

📐 Text Wrapping (Wrap)

Sjálfgefið er mynd í Word „In Line with Text" — hún hegðar sér eins og stór bókstafur og er föst í textanum. Ef þú hægriklikkar á mynd og velur Wrap Text → Square eða Tight, þá getur textinn flætt utan um myndina og þú getur dregið hana hvert sem er á síðuna. Þetta er sérstaklega gott fyrir minni myndir sem eiga við texta.

📄 Page Break

Þegar þú vilt byrja á nýrri síðu — ekki ýta á Enter mörgum sinnum! Notaðu Insert → Page Break (eða Ctrl + Enter). Þetta tryggir að nýi kaflinn byrjar alltaf á nýrri síðu, jafnvel þótt þú breytir textanum fyrir ofan.

💡 Hvenær nota Page Break?

Eftir forsíðu, á undan stórri teikningu, á undan nýjum meginkaflum. Þetta hlíðar þér miklum tíma í frágangi og kemur í veg fyrir að síður „hoppi" þegar þú breytir efni.

✅ Gátlisti — áður en þú skilar

Farðu yfir þessa atriði áður en þú skilar skýrslunni:

📚 Sjáðu líka