Færiband — Frá upphafi til enda
Ef þú ert fastur/föst í færibandaverkefninu: hér er leiðin í gegn, skref fyrir skref.
👋 Áður en við byrjum
Þú ert hér af því að færibandaverkefnið hefur verið erfitt. Það er allt í lagi. Þetta er flóknasta verkefnið hingað til — þú ert að tengja saman allt sem þú hefur lært: SFC, i/o, Ladder og rauntengingar.
Þessi síða tekur þig í gegnum allt ferlið frá byrjun til enda. Ef þú fylgir þessu skref fyrir skref ættirðu að komast í gegn. Ekki reyna að hoppa yfir skref — hvert skref byggir á því á undan.
1. Ekki flækja. Byrjaðu á einföldustu útgáfunni — bara fá bandið til að hreyfast. Bættu svo við.
2. Prófaðu oft. Ekki skrifa allt forritið og prófa svo í einu. Prófaðu eftir hvert network.
3. Leitaðu til kennara. Ef þú ert fastur í meira en 10 mínútur — spyrðu. Þú tapar tíma á að sitja og stara.
🏭 Hvað er færibandaverkefnið?
Þú átt að stýra færibandi með PLC. Hlutur liggur á bandinu. Þegar þú ýtir á Start keyrir bandið hlutinn frá einum stað til annars. Skynjarar greina hvar hluturinn er.
Þetta er í rauninni það sama og þú teiknaðir í SFC ritinu — nema núna þarftu að forrita það í EasySoft og tengja við raunverulegan búnað.
Mundu hvað þú ert með:
Ekki byrja að forrita fyrr en þetta er klár. Ef þú veist ekki hvað forritið á að gera þá getur þú ekki forritað það.
-
Skrifaðu i/o lista. Skráðu alla inngang og útganga. Hvað er tengt við PLC-vélina? Hvaða I-númer fær skynjari 1? Skynjari 2? Start? Stop? Hvaða Q-númer fær mótorinn?
-
Teiknaðu SFC rit. Byrjaðu á Standby. Skrifaðu hvert skref: hvað á bandið að gera? Hvaða transition (skilyrði) þarf til að fara í næsta skref?
-
Lestu SFC ritið upphátt. Farðu í gegnum það: „Kerfið bíður... þegar ýtt er á Start... þá keyrir mótor... þangað til skynjari 2 sér hlut... þá stoppar..." — Ef þetta hljómar rétt þá er ritið líklega rétt.
Getur þú svarað þessu: Hversu margir inngangar? Hversu margir útgangar? Hversu mörg skref í SFC? Ef já → áfram.
Markmið: Fá mótorinn til að snúast. Ekkert meira. Engir skynjarar, engin SFC rökfræði. Bara: ýttu á Start → mótor keyrir. Ýttu á Stop → mótor stoppar.
-
Opnaðu nýtt EasySoft forrit. Veldu réttan tækjatýpu (EasyE4).
-
Skrifaðu Network 1: Sjálfhald á mótori.
Start (I1) OR Q1 → samhliðagrein. Stop (I2) NC í röð → Q1 coil.
Þetta er sama sjálfhald og þú lærðir í viku 5. Ef þú manst ekki → opnaðu Ladder herminn á IEC síðunni. -
Prófaðu í simulation. Keyrir mótorinn þegar þú ýtir á Start? Stoppar hann þegar þú ýtir á Stop? Ef já → þú ert komin(n) lengra en þú heldur.
Athugaðu: Er Stop (I2) sem NC (normally closed)? Ef I2 er NO þá virkar sjálfhaldið ekki. NC þýðir að straumhringurinn er lokaður þegar Stop er ekki ýtt — og opnast þegar þú ýtir.
Mótorinn keyrir þegar þú ýtir á Start. Hann stoppar þegar þú ýtir á Stop. Hann heldur sér í gangi eftir að þú sleppir Start.
Nú ertu komin(n) með virkan mótor. Næst bætir þú inn SFC rökfræðinni. Hvert SFC skref verður minnisbiti (M). Mótorinn keyrir ekki beint af Start heldur af minnisbitum.
-
Skrifaðu niður M-lista. Út frá SFC ritinu:S1: Standby → M1
S2: Keyra til miðju → M2
S3: Bíða 5 sek → M3
S4: Keyra til enda → M4
... o.s.frv. -
Network: Standby (M1). M1 er ON þegar ekkert annað er í gangi. Notaðu NC tengiliði á alla aðra M-bita.
-
Network: M1 AND Start → M2. Þegar kerfið er í Standby (M1=ON) og þú ýtir á Start (I1) → M2 kveikir. M2 hefur sjálfhald. /M3 (NC) slekkur á M2 þegar næsta skref tekur við.
-
Network: M2 AND Skynjari2 → M3. Þegar M2 er ON (bandið keyrir) og skynjari í miðju sér hlut → M3 kveikir (stoppa, bíða).
-
Haltu áfram fyrir öll SFC skref. Sama mynstur: fyrra skref ON + transition → næsta skref.
-
Neðstu networks: M-bitar → Q útgangar. T.d. M2 OR M4 → Q1 (mótor) — mótorinn keyrir þegar kerfið er í skrefi 2 eða 4.
Skrifaðu eitt network, keyrðu simulation. Virkar það? Bættu næsta við. Ekki skrifa 10 networks og prófa svo í einu. Ef eitthvað virkar ekki veistu nákvæmlega hvaða network er vandamálið.
Í simulation: Ýtirðu á Start → mótorinn keyrir → þú hermir skynjara → mótorinn stoppar → bíður → keyrir aftur → fer til baka → endar í Standby? Ef já → forritið virkar.
Ef SFC ritið þitt segir „bíða 5 sek" á einhverjum stað þarftu tímalið (T-blokk). Tímaliðurinn byrjar þegar skrefið verður virkt og gefur frá sér merki þegar tíminn er liðinn.
-
Settu T-blokk inn. Tengdu M3 (biðskref) við EN á tímaliðnum. Stilltu tímann (t.d. 5 sek). Þegar tíminn rennur út → notaðu OF úttakið til að kveikja á næsta M-bita.
-
Tengdu tímalið OF → næsta skref.M3 → EN á T01 (5 sek)
T01.OF → kveikir M4 (næsta skref)
Í simulation: Þegar kerfið stoppar í biðskrefi bíður það í réttan tíma og heldur svo áfram sjálfkrafa?
Forritið virkar í simulation. Nú þarftu að hlaða því á PLC-vélina og tengja víra. Þetta er þar sem villur koma oftast upp — en ef þú ert skipulögð/skipulagður þá finnur þú þær.
-
Skoðaðu teikninguna. Berðu saman i/o listann og teikninguna. Stemma I/Q númer í forritinu við klemmu á PLC-vélinni?
-
Tengdu skynjarana fyrst. Einn skynjara í einu. Tengdu skynjara 1 → athugaðu í EasySoft (online mode) hvort I-inn bregst við. Ef já → næsti skynjari. Ef nei → athugaðu vír.
-
Tengdu mótorinn. Athugaðu hvort Q-úttakið stýrir mótornum. Prófaðu fyrst í „Force" ham — kveiktu á Q1 handvirkt og skoðaðu hvort mótorinn snýst.
-
Keyrðu forritið. Settu PLC í RUN. Ýttu á Start og fylgstu með. Ef eitthvað virkar ekki → sjá bilanaleit hér að neðan.
Ekki örvæntast. 90% af vandamálum eru:
1. Vírar í röngum klemmu (berðu saman við i/o lista)
2. Skynjari ekki tengdur við 24V (vantar straum)
3. I/Q númer í forriti stemmir ekki við raunverulega klemmu
4. PLC ekki í RUN ham
Farðu kerfisbundið í gegnum listann — byrjaðu á #1 og vinndu niður.
Start → bandið keyrir → skynjari stöðvar → bíður → keyrir áfram → endar → Standby. Þú ert búin(n)!
🔍 Bilanaleit — algeng vandamál og lausnir
„Mótorinn keyrir ekki"
→ Er PLC í RUN? → Er Q-úttakið að kveikja? (skoðaðu í online mode) → Er mótorinn tengdur við réttan Q-pin? → Er 24V á motortengingunni?
„Mótorinn stoppar aldrei"
→ Virkar skynjarinn? (skoðaðu I-innganginn í online mode — breytist hann þegar hluturinn kemur?) → Er skynjari tengdur við réttan I-pin? → Er transition í forritinu rétt?
„Forritið hangir á einu skrefi"
→ Hvaða M-biti er ON? (skoðaðu í online mode) → Er transition fyrir næsta skref uppfyllt? → Ef tímaliður — er hann rétt stilltur? → Vantar sjálfhald á M-bitann?
„Forritið virkaði í simulation en ekki í raun"
→ I/Q númer stemma ekki (berðu saman i/o lista við raunverulegar klemmur) → Skynjari gefur öfugt merki en þú bjóst við (NO vs NC skynjari) → Rafmagn á skynjara (þarf 24V)
🏁 Þú getur þetta
Þetta verkefni er erfitt vegna þess að þú ert að gera raunverulega hluti — forrita vél og tengja hana. Þetta er nákvæmlega það sem rafvirkjar gera á hverjum degi. Ef þú nærð þessu þá getur þú verið stolt.
Ef þú ert enn fastur: farðu til kennara með forritið opið á skjánum. Sýndu hvar þú ert komin(n), hvað virkar og hvað virkar ekki. Það er miklu auðveldara að hjálpa þér ef kennarinn sér stöðuna.