💻 Hvað er EasySoft?

EasySoft er forritið sem þú notar til að skrifa Ladder forrit fyrir EasyE4 PLC vélarnar okkar. Í EasySoft geturðu skrifað forritið, prófað það í Simulation, sent það í PLC-ið og farið í Online Mode til að sjá forritið keyra í rauntíma.

EasySoft er frá Eaton og er ókeypis til niðurhals með leyfislykli.

📥 Hala niður EasySoft

EasySoft er hlaðið niður af Eaton vefsíðu. Fylgdu þessum skrefum:

Niðurhal
eaton.eu/software
Smelltu á tengilinn — þú ferð á Eaton Download Center
1
Farðu á eaton.eu/software
Opnaðu eaton.eu/software í vafranum. Þetta opnar Eaton Download Center.
2
Veldu rétt í listunum þremur
Þú sérð þrjá lista á síðunni. Veldu í þessari röð:
1. Select the category: Software
2. Select the software: easySoft
3. Select the version: v8.2x (nýjasta útgáfan)
3
Halaðu niður
Þegar þú hefur valið birtist easySoft V8.25 í töflunni hægra megin. Smelltu á nafnið til að hala skránni niður. Hún er um 443 MB.
Eaton Download Center — velja Software, easySoft, v8.2x
Eaton Download Center — veldu Software, easySoft og nýjustu útgáfuna (v8.2x)

⚙️ Uppsetning

Þegar niðurhalið er búið, keyrðu uppsetningarskrána og fylgdu leiðbeiningunum á skjánum. Uppsetningin er hefðbundin — Next, Next, Install.

Þegar EasySoft opnast í fyrsta skipti biður það um leyfislykil (license key). Notaðu lykilinn hér að neðan:

Leyfislykill (License Key)
QGQHNJ6_>2X<NH2VTUSVSVTU
Smelltu á lykilinn til að velja, svo Ctrl+C til að afrita
⚠️ Þetta er skólaleyfi

Leyfislykillinn er fyrir nemendur í áfanganum. Ekki deila honum utan skólans.

🚀 Eftir uppsetningu

Þegar EasySoft er sett upp og leyfislykill sleginn inn ertu tilbúin(n) til að byrja. Hér er hvað þú getur gert næst:

📝 Skrifa forrit
Búðu til nýtt project og byrjaðu að skrifa Ladder forritið þitt í Programming flipanum.
🧪 Prófa í Simulation
Farðu í Simulation flipann til að prófa forritið áður en þú tengir við PLC.
🔌 Tengjast PLC
Þegar þú ert í stofu C03 — tengjast netinu og senda forrit. Sjá Tengjast og senda forrit.
💾 Vista sem .e80
Vistaðu forritið reglulega! .e80 skráin er það sem þú skilar í verkefnum.

📚 Sjáðu líka