📄 Verkefni: V4 ⚖️ Vægi: 5% 🖊️ W6: 2%

📋 Hvað gerist í þessari viku?

Nú hefst færibandaverkefnið — stærra og flóknara en umferðarljósin. Þú undirbýrð kerfið áður en þú forritar: SFC rit, I/O listi og tengimynd. Þetta er grunnurinn sem allt annað byggir á.

Nýtt í þessu verkefni er að þú þarft líka að hanna stöðuljós (grænt/gult/rautt) sem sýna hvað kerfið er að gera, og gera ráð fyrir neyðarstoppi í hönnuninni.

SFC kortið er unnið eftir leiðbeiningum sem þú hefur fengið og er forsenda forritunnar í viku 9. Tengimyndin verður notuð beint í tengitíma — hún þarf að vera skýr og hagnýt.

📋 Whiteboard W6: Umræður og I/O listar á Whiteboard. Glósur birtast þar.

⚠️ Tengimyndin — mikilvægasti hluti verkefnisins

Tengimyndin (rafmagnsteikning) er sá hluti sem þú munt nota beint í verklegu vinnunni. Hún þarf að vera nógu skýr og nákvæm til að þú getir tengt kerfið án þess að þurfa að giska á neitt. Ef hún er ekki tilbúin í viku 9 — þá geturðu ekki tengt.

✅ Á að sýna
PLC (stýring), alla skynjara, rofa, mótor, ljós, neyðarstopp og tengingar þar á milli
✅ Form
Handteiknuð eða teiknuð í tölvu — þarf að vera prentuð og tilbúin fyrir tengitíma
💡 Ráð: Merktu skýrt hvert vistfang (I1, I2, Q1, Q2…) á teikningunni — þetta sparar þér mikinn tíma í tengitíma. Passaðu að vistföngin samsvari I/O listanum.

🏷️ Heiti búnaðar á tengimynd

Þegar þú teiknar tengimyndina þarftu að nota rétt heiti á hvern búnað. Þetta er staðlað kerfi sem við notum í áfanganum — og í raunverulegu rafmagnsteikningu.

-S
Rofar
Start, Stop, neyðarstopp. Allt sem þú ýtir á eða snýrð.
-B
Skynjarar
Ljósskynjarar, nálgunarskynjari o.fl.
Ath: sumir þurfa +24V og 0V til að virka.
-K
Spólurofar
Segulrofar / tengiliðir. T.d. mótor áfram, mótor afturábak.
-H
Ljós
Stöðuljós, merkiljós. Grænt, gult, rautt o.s.frv.
-A
PLC vélin
Iðntölvan / stýrieiningin sjálf (EasyE4).
-U
Spennubreytar
Allt sem breytir spennu. T.d. spennugjafi (230V → 24V DC).
💡 Dæmi: -S1 = Start rofi, -S2 = Stop rofi, -B1 = Upphafsskynjari, -K1 = Segulrofi (mótor), -H1 = Grænt ljós.

🚦 Stöðuljós — hvað er kerfið að gera?

Þú bætir við þremur ljósum sem sýna stöðu kerfisins. Þetta er staðlað í iðnaði — þú munt sjá svona ljós á næstum hverri vél í verksmiðju.

Grænt ljós
Logar: Færiband er í gangi
Blikkar: Tilbúið að fara í gang
Gult ljós
Blikkar: Kerfið er í bið
(t.d. tímatöf í ferlinu)
Rautt ljós
Logar: Ýtt á Stop
Blikkar: Neyðarstopp virkt
💡 Ljósin þurfa að koma fram í bæði I/O listanum og tengimyndinni. Þau eru útgangar (Q) — PLC-vélin stýrir þeim. Notaðu -H heiti: -H1, -H2, -H3.

🛑 Neyðarstopp

Þú þarft að gera ráð fyrir neyðarstoppi í kerfinu. Ekki er gerð krafa um fulla öryggisútfærslu, en hönnunin á að sýna að þú skilur hlutverk neyðarstopps og hvernig það tengist stýrikerfinu.

Koma fram í:
I/O lista, tengimynd og SFC riti
Virkni:
Stöðvar kerfið þegar ýtt er á — rautt ljós blikkar

🔑 Lykilhugtök vikunnar

Tengimynd
Rafmagnsteikning sem sýnir PLC, búnað og allar tengingar.
I/O listi
Tafla: heiti, tegund (DI/DO), vistfang og lýsing hvers merkis.
Stöðuljós
Grænt/gult/rautt ljós sem sýna stöðu kerfis — staðlað í iðnaði.
Neyðarstopp
Stöðvar allt — á að vera í I/O lista, tengimynd og SFC riti.
  • 📊 Búa til SFC rit fyrir færibandakerfi — skref, skiptingar og aðgerðir
  • 📝 Gera I/O lista: heiti merkis, tegund (DI/DO), vistfang, lýsing á hlutverki
  • 📐 Teikna tengimynd sem er nógu skýr til að tengja beint eftir henni
  • 🚦 Hanna stöðuljós: grænt (í gangi/tilbúið), gult (bið), rautt (stopp/neyðar)
  • 🛑 Gera ráð fyrir neyðarstoppi í hönnun kerfisins
  • 🔗 Tryggja að SFC rit, I/O listi og tengimynd passi saman — samræmd heild
  • 📋 Taka þátt í Whiteboard umræðu (W6)

V4 – Færiband: tengimynd, I/O listi og stöðuljós

Höfundur: Friðrik Óli Atlason

Tilgangur verkefnis

Í þessu verkefni áttu að undirbúa færibandakerfi fyrir raunverulega tengingu. Áhersla er lögð á að þú getir:

  • 🔧 Hugsað kerfið út frá tengingu og uppsetningu
  • 📝 Skilgreint inntök og úttök (I/O)
  • 🚦 Sýnt stöðu kerfisins með ljósum
  • 🛑 Gert ráð fyrir neyðarstoppi í hönnun

Verkefnalýsing

Þú átt að undirbúa eftirfarandi fyrir færibandakerfið:

1. Tengimynd (fyrir tengitíma)

Teikna tengimynd sem hægt er að nota beint í tengitíma. Sýna PLC, öll inntök (skynjarar, rofar, neyðarstopp), allar úttakir (mótor, ljós) og tengingar milli PLC og búnaðar. Handteiknuð eða teiknuð í tölvu og prentuð út.

2. I/O listi

Heiti merkis á teikningu (t.d. -S1, -B1), tegund (DI/DO), vistfang (Q1, I1), og stutt lýsing á hlutverki. I/O listinn á að passa við tengimynd og SFC kort.

Heiti Tegund Vistfang Lýsing
-S1DII1Start rofi
-S2DII2Stop rofi
-B1DII3Upphafsskynjari
-K1DOQ1Segulrofi – mótor
-H1DOQ2Grænt ljós

Dæmi — þú þarft að bæta við öllum skynjurum, ljósum og neyðarstoppi líka.

3. Stöðuljós

Bæta við þremur ljósum (grænt, gult, rautt) sem sýna stöðu færibandsins. Ljósin eiga að koma fram bæði í I/O lista og tengimynd.

4. Neyðarstopp

Gera ráð fyrir neyðarstoppi í kerfinu. Skilgreint í I/O lista, á tengimynd og í SFC riti. Stöðvar kerfið þegar ýtt er á — rautt ljós blikkar.

🖼️ Dæmi — tengimynd af svipuðu kerfi

Hér er dæmi um tengimynd af PLC kerfi. Athugaðu hvernig öll inntök og úttök eru skýrt merkt og tengingar milli PLC og búnaðar koma vel fram. Þín teikning þarf ekki að vera eins flókin — en hún á að sýna sömu aðalatriði.

Dæmið er til viðmiðunar — þú mátt setja upp þína mynd öðruvísi svo lengi sem hún er skýr og nothæf.

📄 Opna PDF verkefnalýsingu
💡 Ábending: Byrjaðu á SFC ritinu — það er grunnurinn. Notaðu það til að finna alla skynjara, rofa og úttök, og byggðu svo I/O listann og tengimyndina út frá því. Ef allt passar saman ertu á réttri leið.

📬 Skil á verkefni V4

Allt verkefnið skal skilað sem einni PDF skrá í skilahólf. Tengimynd þarf að vera tilbúin (prentuð eða handteiknuð) fyrir tengitíma.

Gátlisti — er allt tilbúið?

SFC rit — skýrt og rökrétt, allar stöður, skilyrði og biðtímar koma fram
Tengimynd — PLC, skynjarar, rofar, mótor, ljós, neyðarstopp. Vistföng merkt. Tilbúin til prentunar
I/O listi — heiti (-S, -B, -K, -H…), tegund (DI/DO), vistfang, lýsing. Passar við SFC rit og tengimynd
Stöðuljós (grænt, gult, rautt) koma fram í I/O lista og á tengimynd
Neyðarstopp skilgreint í I/O lista og á tengimynd
Ein PDF skrá skilað í skilahólf — allt saman í einni skrá

⚖️ Matskvarði — áhersla á skýrleika og nothæfni:

MATSÞÁTTUR
ÓFULLNÆGJANDI (1)
FULLNÆGJANDI (2)
MJÖG GOTT (3)
SFC rit
Óskýrt eða ófullnægjandi, ekki hægt að forrita án ágiskana
Að mestu skýrt og hægt að forrita, en einhver atriði óskýr
Skýrt, rökrétt, allar stöður og skilyrði greinileg
Tengimynd
Óskýr eða vantar mikilvæga hluta — tenging erfið
Nothæf en vantar smá skýrleika eða smáatriði
Mjög skýr, PLC, I/O, ljós og neyðarstopp koma vel fram
I/O listi
Óskýr, illa uppsettur, ekki í samræmi við SFC eða teikningu
Að mestu skýr en vantar betra samræmi á sumum merkjum
Skýr, greinilegur, samræmist SFC riti og teikningu
Frágangur og skil
Slakur frágangur eða skil ekki samkvæmt fyrirmælum
Skilað rétt en frágangur mætti vera betri
Vel skipulagt, faglegt, allt í einni PDF, teikning tilbúin
⚠️ Mundu: Þessu verkefni þarf að vera skilað áður en haldið er í næsta verkefni. Tengimyndin þarf að vera prentuð og tilbúin þegar þú mætir í tengitíma í viku 9. Ef þú skilar ekki — þá geturðu ekki haldið áfram.