Vika 5 – Spólur, Set/Reset og tímaliðir
Ladder Logic kynnt til leiks. Þrjár gerðir spóla, kynning á tímaliðum, og V2 — umferðarljós í Ladder.
📋 Hvað gerist í þessari viku?
Nú færumst við úr SFC yfir í Ladder Logic — forritunarmálið sem PLC-vélin skilur. Þú lærir hvernig spólur (coils) virka, muninn á venjulegri spólu, Set og Reset, og þú kynnist tímaliðum sem stýra biðtímum á milli skrefa.
Verkefni vikunnar (V2) er að teikna Ladder Diagram fyrir umferðarljós — þú tekur SFC ritið frá viku 4 og umbreytir því yfir í Ladder. Þetta er fyrsta skrefið í raunverulegri forritun.
Mikilvæg regla: Í Ladder má aldrei skrifa sama útgang eða spólu oftar en einu sinni. Ef Q1 birtist í tveimur networks þá yfirskrifar seinna network-ið hið fyrra — og forritið virkar ekki eins og þú bjóst við.
🔄 Hvernig les PLC-vélin forritið?
PLC-vélin keyrir forritið þitt í endalausa hring — aftur og aftur, mörgum sinnum á sekúndu. Þessi hringur heitir scan cycle og hefur þrjú skýr skref:
📖 Bókarsamlíkingin
Hugsaðu Ladder forritið eins og bók. PLC-vélin les alltaf bókina frá fyrstu síðu til þeirrar síðustu — hún hoppar ekki yfir kafla og hún les aldrei bara hálfa bók.
Þegar hún er búin að lesa alla bókina — þá tekur hún ákvörðun og uppfærir úttökin. Svo byrjar hún aftur á fyrstu síðu og les allt aftur.
Þetta þýðir: röðin á network-unum skiptir máli! Ef Network 3 breytir minnisbita sem Network 10 notar, þá mun Network 10 sjá breytinguna í sömu umferð. En ef Network 10 breytir bita sem Network 3 notar — þá sér Network 3 það ekki fyrr en í næstu umferð.
Forritið virkar jafnvel þótt allt sé í einum hring — PLC nær að lesa allt og uppfæra allt á ~10 millisekúndum.
Ef sama spóla er tvisvar í forritinu — seinna network-ið „vinnur" alltaf, því PLC las það síðast áður en hún skrifaði úttökin.
🔄 Þrjár gerðir spóla
Hægra megin í hverju Ladder rung-i er spólan — það sem gerist þegar skilyrðið er uppfyllt.
Set/Reset — þegar þú vilt „muna" stöðu (kveikja með einum takka, slökkva með öðrum).
⚠️ Gullreglan: Ekki skrifa spólu oftar en einu sinni!
Í Ladder má hver útgangur eða spóla aðeins birtast einu sinni sem spóla (coil) í öllu forritinu. Ef þú skrifar Q1 sem spólu í Network 2 og aftur í Network 5, þá yfirskrifar Network 5 alltaf Network 2 — þú tapar ráðningunni á úttakinu.
Undantekningin: Þú mátt nota Set (S) á einum stað og Reset (R) á öðrum stað — þetta er eina leiðin til að stýra sama úttaki frá fleiri en einu network. Þess vegna er Set/Reset svona gagnlegt.
Network 2: I1 ── ( Q1 )
Network 5: I2 ── ( Q1 ) ← yfirskrifar!
Network 2: I1 ── (S Q1)
Network 5: I2 ── (R Q1)
⏱️ Tímaliðir — stuttlega
Í umferðarljósunum þarf eitthvað að stjórna hversu lengi hvert ljós er kveikt. Þetta gerir tímaliðinn (T-blokk). Þú þarft ekki að kunna allt um tímaliði í þessari viku — en þú þarft að vita að þeir eru til og hvernig seinn inn virkar:
Dæmi: Rautt ljós er kveikt → seinn inn 10 sek → breyta yfir í grænt.
🔑 Lykilhugtök vikunnar
🧠 Prófaðu þig
Smelltu á svar — útskýring birtist hvort sem þú svarar rétt eða rangt.
⭐ Mikilvægast að muna úr þessari viku
- Skilja muninn á spólu ( ), Set (S) og Reset (R) — og hvenær á að nota hvað
- Skilja einu sinni regluna — hver útgangur birtist aðeins einu sinni sem spóla
- Kynnast tímaliðum — vita hvað „seinn inn" þýðir og hvers vegna hann er nauðsynlegur
- Skilja hvernig SFC umbreytist yfir í Ladder — skref → minnisbiti, transition → skilyrði
- Teikna Ladder Diagram fyrir umferðarljós (V2) — handskrifað eða í EasySoft
- Taka þátt í Whiteboard umræðu (W3)
V2 – Umferðastýring – SFC kort
Höfundur: Friðrik Óli Atlason
Tilgangur verkefnis
Verkefnið leggur áherslu á tengingu milli: flæðis (SFC) — I/O skilgreininga — raunverulegrar tengingar kerfis.
Að nemendur:
- Hanni SFC-stýringu fyrir einfalt iðnstýrikerfi
- Skilji hlutverk stöðva, umskipta og tímaskilyrða
- Geti sett upp I/O lista fyrir iðntölvu
- Geti teiknað einfalda kerfismynd sem sýnir tengingu inn og útganga
- Þjálfist í faglegri framsetningu tæknilegra lausna
Verkefnalýsing
Nemendur eiga að hanna SFC kort fyrir einfalt umferðarljósakerfi sem stýrir umferð í tveimur akstursstefnum til skiptis, t.d. við vegaframkvæmdir. Kerfið skal vera byggt á tímastýringu og tryggja að aldrei séu tvö græn ljós virk samtímis.
Forsendur kerfis:
Tvær akstursstefnur (A og B). Hvor stefna hefur rautt, gult og grænt ljós. Kerfið vinnur í endurteknum hring.
Röð kerfis:
Kröfur til skilaverkefnis
1. SFC kort
Allar stöður og umskipti sýnileg. Umskipti byggja á tímaskilyrðum. Tímar skýrt skilgreindir og merktir.
2. Teikningar af kerfinu
Einfaldar kerfisteikningar sem sýna PLC/stýrieiningu, inn og útganga, og tengingu útganga við ljós (rauð, gul, græn).
3. I/O listi
Heiti merkis, hvort um inngang eða útgang sé að ræða, vistfang, og hlutverk merkis í kerfinu.
| Tegund | Heiti | Vistfang | Lýsing |
|---|---|---|---|
| Útgangur | Grænt_A | Q1 | Grænt ljós, stefna A |
| Útgangur | Gult_A | Q2 | Gult ljós, stefna A |
| Útgangur | Rautt_A | Q3 | Rautt ljós, stefna A |
Dæmi — þú þarft að bæta við stefnu B líka.
4. Greinargerð
Útskýra virkni kerfisins skref fyrir skref, tengja saman SFC, teikningar og I/O lista, og rökstyðja hvernig öryggi er tryggt.
⚖️ Matskvarði:
📄 Opna PDF verkefnalýsingu
-
Rofar, tengiliðir og spólur
EasyE4 vélin, NO/NC, make/break í Ladder, Set/Reset. Gagnvirkur hermir.
-
T – Tímaliði í EasySoft
Seinn inn, seinn út, púls og blikkari. Fjórar stillingar með gagnvirkum hermi.
-
Hvernig teikna ég SFC rit?
Rifjaðu upp SFC ef þú þarft — transition vs. action
-
IEC 61131-3 — Ladder hermir
Prófaðu sjálfhald á mótori í gagnvirkum hermi