🖊️ W1: 2% 🚀 Session Zero

🤖 Hvað er þessi áfangi?

Þetta er áfangi um iðntölvustýringar — eða PLC forritun eins og það er oft kallað. PLC stendur fyrir Programmable Logic Controller og er í rauninni lítil tölva sem stjórnar vélum og búnaði.

PLC-vélar eru alls staðar: í verksmiðjum, lyftum, umferðarljósum, hituðum pottum, fiskeldis­stöðvum — í raun í öllu sem þarf að stjórna sjálfvirkt. Í þessum áfanga lærir þú að forrita svona vélar, tengja þær við skynjara og búnað, og skilja hvernig þetta allt virkar saman.

Við byrjum rólega, lærum grunnatriðin, og svo smám saman flóknari stýringar — þangað til þú velur þitt eigið verkefni og færð það til að virka!

🗺️ Hvað ætlum við að gera?

Áfanginn er í 17 vikur (vika 3–20, með páskafríi í viku 14). Hér er yfirlitið:

Vikur 3–5
Grunnurinn — Þú lærir hvað PLC er, hvernig SFC (flæðirit) virkar, og byrjar á Ladder forritun. Fyrsta verkefnið er umferðarljós.
Vikur 6–7
Umferðarljós — Þú teiknar, forritar og tengir umferðarljós á raunverulegum búnaði. Fyrstu rauntengingar!
Vikur 8–9
Færiband — Flóknara verkefni. Þú hannar þrepastýringu fyrir færiband og færð það í virkni.
Vikur 10–12
Íþróttahöll — Ljósstýring í íþróttahöll: mörg ljós, margir rofar, mismunandi birtustig. Þetta reynir á hönnunina.
Vika 13
Tímaverkefni — Segulliðastýringar umbreytt yfir í Ladder forrit. Einstaklingsverkefni í tíma (10%).
Vikur 15–20
Þitt verkefni! — Þú velur PLC-stýringu, hannar, forritar og tengir hana. Þetta er lokaverkefnið og vegur 30% af einkunn.

📋 Whiteboard — Hvernig virkar þetta?

Í næstum hverri viku er Whiteboard umræða. Þetta er stór hluti af áfanganum (25% af einkunn!) og virkar svona:

Þú færð aðgang að Whiteboard fyrir þinn hóp (Hópur 1 eða Hópur 2). Þar ferur fram umræða, glósur og samvinna. Þegar kennari fer yfir eitthvað á töflunni þá birtast þær glósur á Whiteboard-inu.

Þetta þýðir:

Af hverju Whiteboard? Vegna þess að þú lærir betur þegar þú tekur þátt, skrifar og hugsar — ekki bara hlustar. Þetta er þín glósubók í áfanganum.

⚖️ Hvernig er áfanginn metinn?

Áfanginn er símetinn — það er ekkert lokapróf. Einkunnin byggist á verkefnum og þátttöku yfir önnina. Hér er sundurliðunin:

📋 Whiteboard 25%
13 umræðuþræðir (W1–W13). Þátttaka, glósur og samvinna. Þetta er sá hluti sem þú safnar í hverri viku.
📝 Undirbúningur 15%
V1 og V4 — SFC rit, teikningar, i/o listar og verklýsingar. Þetta er pappírsvinnan áður en þú forritar.
🔧 Forritun & tengingar 20%
V2, V3, V5, V7 — Tengingar á raunbúnaði og prófanir. Hér sérðu hvort kóðinn þinn virkar í alvöru!
⏰ Tímaverkefni 10%
V8 — Segulliðastýring yfir í Ladder. Einstaklingsverkefni sem þú gerir í kennslustund í viku 13.
🏆 Lokaverkefni (V9 + V10 + V11) 30%
Þú velur þitt eigið PLC-verkefni og vinnur í því í vikur 15–20. Metið í þremur áföngum: verkefnalýsing (10%), forritun til endurgjafar (10%), og loks video af virkni (10%). Þetta er stærsta einstaka verkefnið.

Einkunnir eru birtar í INNU eftir hverja lotu. Námsmat gæti breyst í samráði við nemendur ef forsendur breytast.

💻 Hvað þarf ég að setja upp?

Við þurfum nokkur forrit til að vinna í áfanganum. Sæktu og settu upp eftirfarandi í dag:

💡 Vandamál með uppsetningu? Segðu til í tímanum — við leysum þetta saman. Ekki bíða, þú þarft forritin strax í næstu viku.

📊 SFC — Hvað er þetta?

SFC stendur fyrir Sequential Function Chart — á íslensku er þetta „flæðirit" eða „þrepamynd". Þetta er leið til að teikna hvernig stýring á að virka, skref fyrir skref.

Hugsa um það svona: ef þú ætlar að lýsa hvernig þvottavél virkar, þá gætirðu skrifað:

Þrep 1: Fylla af vatni → ef vatnshæð nóg →
Þrep 2: Þvo (snúa trumbu) → ef 10 mín liðnar →
Þrep 3: Tæma vatn → ef tómt →
Þrep 4: Þurrka (snúa hratt) → ef 5 mín liðnar →
Lokið!

Þetta er SFC í hnotskurn. Við munum nota þetta í öllum verkefnum áður en við byrjum að forrita — fyrst teikna hvað á að gerast, svo forrita í Ladder.

  • 🤝 Kynnast áfanganum, samnemendum og hvernig við vinnum saman
  • 💻 Setja upp EasySoft og aðra hugbúnaði sem þarf
  • 🤖 Skilja hvað PLC (iðntölva) er og hvar þær eru notaðar í raunveruleikanum
  • 📊 Fá fyrstu innsýn í SFC — flæðirit sem lýsir hvernig stýring virkar skref fyrir skref
  • 📋 Fyrsta Whiteboard umræðan (W1) — taktu þátt og skráðu glósur

Ekkert stórt verkefni á þessari viku — þetta er kynningarvika. En þú þarft að:

  • 1️⃣ Setja upp EasySoft á tölvunni þinni og ganga úr skugga um að það opnist
  • 2️⃣ Taka þátt í W1 — fyrsta Whiteboard umræðan. Skrifaðu glósur og taktu þátt í umræðu (2%)
  • 3️⃣ Athugaðu Moodle — gakktu úr skugga um að þú hafir aðgang að áfanganum